Skip to content

Óvissa um örveruástand á nautamaga

  • by

Matvælastofnun varar við neyslu á Cow Stomach Abodi (frosin nautamagi) vegna óvissu um örveruástand, sem Fiska.is flytur inn og selur í verslun sinni. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlitið innkallað vöruna.

Tilkynningin barst til Íslands í gegnum hraðviðvörunarkerfi RASFF frá Evrópu um hættuleg matvæli og fóður á markaði.

Innköllun nær yfir allar framleiðslulotur af þessum matvælum.

  • Vörumerki: Afroase
  • Vöruheiti: Cow Stomach Abodi
  • Best fyrir: Allar dagsetningar
  • Nettóþyngd: 1 kg
  • Geymsluskilyrði: Frystivara
  • Framleiðandi: Asia Express Food, Kilbystraat 1, 8263 CJ Kampen,
  • Framleiðsluland: Holland.
  • Dreifing: verslun Fiska.is