Fyrirtækið ORA hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit
Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes.
Ástæða innköllunarinnar er hugsanlegur málmaðskotahlutur í þessari lotu. Með öryggi
neytenda í forgangi er ákveðið að innkalla lotuna.
Upplýsingar um vöruna:
- Vörumerki: Ora
- Vöruheiti: Maískorn, 420g
- Framleiðandi: ORA (Myllan-ORA ehf.) kt 660169-1729
- Framleiðsluland: Ísland
- Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: Lotunúmer L105293, BF. 21.01.2030
- Geymsluskilyrði: Hilluvara
- Dreifing: Verslanir um land allt
Neytendum sem keypt hafa vöruna með þessu lotunúmeri er bent á að neyta hennar ekki. Neytendur
geta skilað vörunni til OJK-ÍSAM ehf, Blikastaðavegur 2-8, 112 Reykjavík eða ORA, Vesturvör 12, 200
Kópavogur eða þar sem varan var keypt.