Skip to content

Vatnssuða við Dynjanda

  • by

Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða tók neysluvatnssýni úr krana við þjónustuhúsið við Dynjanda þann 22. júní. Sýnið uppfyllti ekki gæðakröfur vegna kólígerla og E. coli og eru gestir því hvattir til að sjóða neysluvatnið áður en þess er neytt.