HEF heilbrigðiseftirlit hefur sent upplýsingar um innköllun á Napoleon steypujárnspönnu (56003) sem seldar eru í Byko og í vefverslun Byko. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlitið innkallað pönnurnar.
Nýlegar prófanir hafa sýnt að varan gefur frá sér meira magn af járni, mangani, krómi og arseniki en leyfilegt er samkvæmt reglugerðum Evrópusambandsins.
Dreifing: Dreift og selt í verslunum BYKO og vefverslun byko.is
Neytendur sem eiga Napoleon steypujárnspönnu (56003) skulu hætta notkun hennar strax og skila vörunni á sölustað.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu BYKO: https://byko.is/thjonusta/innkallanir