Skip to content

Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur í súkkulaðibitaköku (mjólk)

  • by

Matvælastofnun varar neytendur sem hafa ofnæmi-eða óþol fyrir mjólk að neyta súkkulaðibitakökur frá Gæðabakskri ehf. vegna vanmerkinga. En varan inniheldur mjólk sem ekki er getið um á innihaldslýsingu vörunnar. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar innkallað vöruna,

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotur:

  • Vörumerki: Gæðabakstur
  • Vöruheiti: Súkkulaðibitakaka
  • Geymsluþol: Allar best fyrir dagsetningar frá 04.07.2026 til 14.07.2026.
  • Strikamerki: 5690896004098
  • Nettómagn: 100 g
  • Framleiðandi: Gæðabakstur ehf., Lynghálsi 7, 110 Reykjavík
  • Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Gæðabakstur ehf., Lynghálsi 7, 110 Reykjavík.
  • Dreifing: Verslanir Krónunnar um allt land og verslanir Mini Market í Hafnarfirði og Reykjavík.