Skip to content

Innköllun á Salling Øko Dild

  • by

Að beiðni Salling Group hafa Aðföng hafið innköllun á Salling Øko Dild (15gr). Innköllunin er tilkomin vegna
mögulegrar tilvistar bjöllu (skordýra) í vörunni og varðar hún lotunúmer: 007221 (best fyrir: 15.09.2027)
og lotunúmer 009157 (best fyrir: 25.03.2028)
Varan hefur verið tekin úr sölu í verslunum og einnig hefur verið sett sölustöðvun á viðkomandi lotunúmer.

Vöruheiti: Salling Øko Dild (15gr).
Nettómagn: 15g
Umbúðir: Plastumbúðir
Strikamerki: 5712877909045
Best fyrir dagsetning: 15.09.2027 og 25.03.2028
Lotunúmer: 007221 og 009157
Geymsluskilyrði: Þurrvara
Framleiðandi: DAVA FOODS INGREDIENTS A/S
Dreifing: Verslanir Bónus og Hagkaups

Viðskiptavinum Bónus og Hagkaups sem keypt hafa vöruna er ráðið frá því að neyta hennar og er bent á að
þeir geta skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
Aðföng biður viðskiptavini Bónus og Hagkaups sem kunna að hafa orðið fyrir óþægindum vegna þessa
innilegrar afsökunar.
Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 5305600 eða í gegnum netfangið gm[at]adfong.is