Kjarnafæði Norðlenska, í samráði við Krónuna og Matvælastofnun, innkallar Krónu pylsur 10
stk með síðasta notkunardag 27.08.2026.
Ástæða innköllunar
Vegna prentvillu á hluta framleiðslulotunnar birtist innihaldslýsing ekki á umbúðum vörunnar.
Þar af leiðandi er sojaprótein, sem er ofnæmis- og óþolsvaldur, ekki tilgreint á umbúðunum.
Varan inniheldur sojaprótein sem getur valdið ofnæmisviðbrögðum hjá einstaklingum með
ofnæmi eða óþol fyrir soja.
Upplýsingar um vöruna
- Vöruheiti: Krónu pylsur 10 stk
- Framleiðandi: Kjarnafæði Norðlenska
- Lotunúmer: 758-26210-2
- Síðasti notkunardagur: 27.08.2026
- Dreifing: Verslanir Krónunnar
Mikilvægar upplýsingar til neytenda
Neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir soja eru beðnir um að neyta vörunnar ekki. Þeir geta
annað hvort fargað vörunni eða skilað henni í næstu verslun Krónunnar og fengið fulla
endurgreiðslu.
Kjarnafæði Norðlenska biðst innilegrar velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda
og þakkar viðskiptavinum fyrir skilninginn.
Mynd af réttri innihaldslýsingu og mynd af vanmerktri vöru fylgja hér að neðan