Skip to content

Innköllun á River hrísgrjónum úr verslunum Samkaupa

  • by

Danól, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur ákveðið að innkalla River hrísgrjón
sem seld voru í Samkaupum með best fyrir merkingu “BF 02.06.2028.”
Ástæða innköllunar er að í einni lotu, sem aðeins fór í verslanir Samkaupa, fundust
skordýraleifar. Óhætt er að neyta vörunnar og þetta á ekki við um River hrísgrjón sem seld
eru í öðrum verslunum.

Vörumerki: River Rice

  • Vörunúmer: 430055
  • BF 02.06.2028
    Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Danól, Fossháls 25, 110 Reykjavík

Leiðbeiningar til neytenda:
Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er
hægt að skilað vörum sem innköllunin tekur til, með því að senda mynd af pakkningunni með
viðeigandi dagsetningu, ásamt upplýsingum um kaupanda á netfangið danol@danol.is. Danól
harmar þau óþægindi sem innköllunin kann að valda.

Nánari upplýsingar um innköllun:
Danól, Fossháls 25, 110 Reykjavík
danol@danol. is, sími 595 8000