Skip to content

Innköllun á Krónu pistasíuhnetum ristuðum og söltuðum

  • by

Krónan hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs,
Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, innkallað eftirfarandi matvöru af markaði eftir að
varnarefnið Clothianidin mældist í vörunni.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:

Vöruheiti: Pistasíuhnetur ristaðar og saltaðar
Vörumerki: Krónan
Nettómagn: 200 g
Framleiðandi: Ziba Naghsh
Innflytjandi: Salvía ehf.
Framleiðsluland: Íran
Best fyrir dagsetning: 03.01.2027
Geymsluskilyrði: Þurrvara
Dreifing: Krónan, Dalvegi 10-14

Viðskiptavinum sem hafa verslað vörurnar í verslunum Krónunnar er bent á að skila
þeim í viðkomandi verslun gegn fullri endurgreiðslu. Krónan biður viðskiptavini sína
afsökunar á óþægindum sem þetta kann að valda.
Fyrir nánari upplýsingar um innköllun vörunnar er hægt að senda tölvupóst á
netfangið innkallanir@kronan.is.