Góa Linda sælgætisgerð hefur ákveðið í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar,
Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) að innkalla vöruna APPOLO
LAKKRÍS BITAR bleikir, 250 g.
Ástæða innköllunarinnar er sú að vírþræðir úr vírbursta hafa fundist í nokkrum bitum.
Upplýsingar um vöruna sem innköllun einskorðast við:
Framleiðandi: Góa Linda Sælgætisgerð
Vörumerki: Appolo
Vöruheiti: Appolo lakkrís bitar bleikir.
Best fyrir dagsetning/Lota: 23.09.2027
Nettó þyngd: 250 g
Strikanúmer: 5690558002721
Dreifing: Hagkaup verslanir á höfuðborgarsvæðinu, Hagkaup Akureyri, Nettó Salarvegi, Nettó
Húsavík og Kaupfélag Skagfirðinga.
Búið að koma upplýsingum til söluaðila að viðkomandi vara verði tekin úr sölu.
Eigendur varanna eru vinsamlega beðnir um að koma vörunni til Góu, Garðahrauni 2, 210
Garðabæ.
Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
