Arna ehf. innkallar vöruna Örnujógúrt með jarðarberjum og AB gerlum, best fyrir 13.11.26 vegna aðskotahlutar, plaststykki sem fannst í einni dós.
Nánari upplýsingar um vöruna sem innköllun á við:
Vörumerki: Arna
Framleiðandi: Arna ehf, Hafnargata 80, 415 Bolungarvík
Vara: Örnujógúrt með jarðarberjum og AB gerlum
Þyngd: 200g dós
Best fyrir: 13.11.26
Strikanúmer: 5694230157044
Geymsluskilyrði: Kælivara 0-4°C
Dreifing: Krónan, Bónus, Hagkaup, Prís, Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin, Fjarðarkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Hlíðarkaup, Melabúðin.
Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig má skila henni í verslun gegn nýrri vöru eða fullri endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar um innköllunina er hægt að fá hjá Örnu í síma 456-5600 eða í gegnum netfangið arnamaria@arna.is.
