Skip to content

Vanmerkt Barebells próteinstykki innköllun

  • by

Core Heildsala innkallar Barebells Coco choco í samráði við Heilbrigðiseftirlit
Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF).
Möguleiki er á að rangri tegund hafi verið pakkað í umbúðir fyrir Coco Choco
próteinstykki sem inniheldur ofnæmisvaldana jarðhnetur og soja.

Upplýsingar um vöruna:

  • Vörumerki: Barebells
  • Vöruheiti:. Barebells Coco Choco
  • Framleiðandi: Barebells
  • Framleiðsluland: Svíþjóð
  • Strikanúmer: 7340001805383
  • Nettóþyngd: 55g
  • Lotunúmer: L6055-R
  • Best fyrir dagsetningar: 24.02.2027
  • Dreifing: Bónus, Krónan, Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin,10-11, Hagkaup, N1 og
    Olís.

Þeir sem eiga umrædda vöru ennþá til eru beðnir um að neyta hennar ekki, og farga eða
skila til Core heildsölu ehf, Víkurhvarf 1, 203 Kópavogur gegn fullri endurgreiðslu.
Core heildsala ehf. biður viðskiptavini sína afsökunar á óþægindum sem þetta kann að
valda.
Fyrir nánari upplýsingar er hægt að hafa samband í síma: 553-1930 eða senda tölvupóst
á netfangið: core@core.is