Skip to content

Innköllun á frystum ostrum

  • by

Dai Phat Iceland ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og
innkallað frá neytendum frystar ostrur. Nóróveira hefur greinst í vörunni.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Surasang
Vöruheiti: Frozen oyster (I.Q.F)
Geymsluþol: Best fyrir 25.04.2027
Lotunúmer: 26.04.2025
Geymsluskilyrði: Frystivara
Nettómagn: 226 g
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:
Dai Phat Iceland ehf., Faxafen 14, 108 Reykjavík
Dreifing:
Dai Phat Asian Supermarket, Faxafen 14, 108 Reykjavík

Viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni í
þeirri verslun þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.