Fyrirtækið Myllan-ORA hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar,
Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes.
Ástæða innköllunarinnar er vanmerking ofnæmisvalda. Í innihaldslýsingu vantar að tilgreina
SELLERÍ sem ofnæmisvald.
Athugið að varan er ekki skaðleg þeim sem ekki eru með ofnæmi eða óþol fyrir viðkomandi
ofnæmisvöldum.
Ef viðkomandi sósa er merkt með þessum ofnæmisvöldum: sinnepi, fiski, eggi, mjólk, soja og
selleríi, þá hefur hún verið endurmerkt með réttri innihaldslýsingu og ekki þarf að skila henni.
Upplýsingar um vöruna
- Vörumerki: HAGKAUP
- Vöruheiti: HAGKAUP Kokteilsósa
- Framleiðandi: ORA (Myllan-Ora ehf.) kt 660169-1729
- Framleiðsluland: Ísland
- Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: BF. 04.10.2026
- Geymsluskilyrði: Kælivara
- Dreifing: Hagkaup
Ef þú keyptir vöruna fyrir 10.07.2026 er hún rangt merkt. Þú getur skilað henni í næstu
Hagkaupsverslun og fengið hana endurgreidda. Allir brúsar sem keyptir voru eftir 11.07.2026 hafa verið rétt endurmerktir