Innköllun á Stjörnu Prótein poppi Salted Caramel vegna vanmerktur ofnæmis- og
óþolsvaldur (mjólk) í innihaldslýsingunni á vörunni.
Iðnmark hf. innkallar Stjörnu Prótein popp Salted Caramel í samráði við Heilbrigðiseftirlit
Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness.
Upplýsingar um vöruna
Vörumerki: Stjörnu
Vöruheiti: Prótein popp Salted Caramel
Framleiðandi: Iðnmark hf.
Framleiðsluland: Ísland
Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 03.11.26, 20.10.26, 05.10.26
Geymsluskilyrði: Geymist á þurrum stað við stofuhita
Dreifing: Krónan, verslanir Samkaupa og Hagkaup
Ástæða innköllunar
Vanmerktur ofnæmis- og óþolsvaldur (mjólk) í innihaldslýsingunni á vörunni.
Varan inniheldur mjólk sem ekki er getið um í innihaldslýsingu vörunnar. Varan getur því
valdið ofnæmisviðbrögðum hjá einstaklingum með ofnæmi/óþol fyrir mjólk.
Innköllunin varðar eingöngu einstaklinga með ofnæmi/óþol fyrir mjólk. Varan er ekki talin
hættuleg öðrum neytendum.
Leiðbeiningar til neytenda
Neytendur sem hafa ofnæmi eða óþol fyrir mjólk skulu ekki neyta vörunnar heldur farga eða
skila í verslun til að fá endurgreiðslu.