Skip to content

Vanmerktur ofnæmisvaldur í Voga ídýfu krydd (hveiti)

  • by

Matvælastofnun varar neytendur við sem hafa ofnæmi fyrir hveiti við Voga ídýfu krydd sem hafa best fyrir dagsetningu 30.10.2026 eða fyrr. Vörurnar innihalda hveiti en það er ekki merkt á umúðum varanna. Mjólkursamlag KS, sem framleiðir vörurnar hefur í samráði við Matvælastofnun, innkallað vörurnar.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vörumerki: Voga ídýfa
  • Vöruheiti: Voga ídýfa krydd 175g og 400ml
  • Framleiðandi: Mjólkursamlag KS, Sauðárkróki.
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Lotunúmer/best fyrir dagsetningar:  BF 28.07.2026 til og með 30.10.2026. Lotunúmer frá 26-0744 til 26-1630.
  • Geymsluskilyrði: Kælivara
  • Dreifing: Allar helstu verslanir

Viðskiptavinum með ofnæmi-eða óþol fyrir hveiti er bent á að farga vörunni eða skila í þá verslun sem hún var keypt í gegn endurgreiðslu.