Skip to content

Innköllun á Rana pestósósu með hvítlauki

  • by

Krónan hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs,
Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, innkallað Rana pestósósu með hvítlauki. Innköllun er
gerð þar sem best fyrir dagsetningu vantar á umbúðir vörunnar.


Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vöruheiti: Pestósósa með hvítlauki
Vörumerki: Rana
Nettómagn: 140 g
Framleiðandi: Pastificio RANA S.p.A
Innflytjandi: Krónan, Dalvegi 10-14
Framleiðsluland: Ítalía
Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: Vantar á umbúðir
Geymsluskilyrði: Kælivara
Dreifing: Verslanir Krónunnar


Viðskiptavinum sem hafa verslað vöruna í verslunum Krónunnar er bent á að skila
vörunni í viðkomandi verslun gegn fullri endurgreiðslu. Krónan biður viðskiptavini sína
afsökunar á óþægindum sem þetta kann að valda.


Fyrir nánari upplýsingar um innköllun vörunnar er hægt að senda tölvupóst á netfangið
innkallanir@kronan.is