Skip to content

Innköllun á Matcha grænt te frá vörumerkinu SHAN WAI SHAN

  • by

Kína Panda ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja, hefur stöðvað sölu og innkallað
frá neytendum Matcha grænt te frá vörumerkinu SHAN WAI SHAN. Varan inniheldur mjög hátt magn áls (aluminium) og er því metin óörugg til neyslu. Ef vörunnar er neytt regulega geta neytendur orðið fyrir of mikilli langtímaútsetningu fyrir áli. Því er varan talin geta skapað mögulega áhættu fyrir heilsu fólks.

Vörumerki: SHAN WAI SHAN
Vöruheiti: Matcha green tea
Geymsluþol: Lotunúmer NL-02-250312, best before 12/03/2028
Nettómagn: 12×80 g
Framleiðandi Fujian Blue Lake Foods Co.
Framleiðsluland: Kína
Innflytjandi: Kína Panda ehf.

Viðskiptavinir sem keypt hafa vöruna eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila til
verslunarinnar.