Skip to content

Innköllun á Grön Balance frosnum hindberjum

  • by

Krónan hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs,
Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, innkallað eftirfarandi matvöru af markaði eftir að
skordýr fannst í innihaldi einnar pakkningar.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við:
Vöruheiti: Hindber frosin
Vörumerki: Grön Balance
Nettómagn: 150 g
Framleiðandi: Dagrofa ApS
Innflytjandi: Krónan, Dalvegi 10-14
Framleiðsluland: Pólland
Lotunúmer/best fyrir dagsetningar: 19.03.2028
Geymsluskilyrði: Frystivara
Dreifing: Krónan, Dalvegi 10-14

Viðskiptavinum sem hafa verslað vörurnar í verslunum Krónunnar er bent á að skila
þeim í viðkomandi verslun gegn fullri endurgreiðslu. Krónan biður viðskiptavini sína
afsökunar á óþægindum sem þetta kann að valda.
Fyrir nánari upplýsingar um innköllun vörunnar er hægt að senda tölvupóst á
netfangið innkallanir@kronan.is.