Skip to content

BRIKK súkkulaðikaka innkölluð vegna villandi merkinga á ofnæmisvöldum og rangt merktra innihaldsefna

  • by

BRIKK innkallar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs,
Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes (HEF) BRIKK Súkkulaðiköku vegna þess að hún
inniheldur möndlusmjör og á umbúðunum kemur fram að varan gæti innihaldið
snefilmagn af möndlum og hnetum. Þessar fullyrðingar um að varan geti innihaldið
möndlur og/eða hnetur í snefilmagni eru því villandi og hættulegar neytendum sem hafa
ofnæmi fyrir möndlum en þola þær í snefilmagni.

Upplýsingar um vöruna:

  • Framleiðandi: Brikk Eldhús ehf
  • Vörumerki: BRIKK
  • Vöruheiti: Súkkulaðikaka
  • Geymsluþol: Best fyrir dagsetning. 2/9/26
  • Nettó þyngd: 650 g
  • Strikanúmer: 5694230457311
  • Dreifing: Verslanir Krónunar Mosfellsbæ, Grafarholti, Bíldshöfða, Lindum, Akrabraut, Flatarhrauni, Norðurhellu, Austurveri, Skeifunni, Borgartúni, Hallveigarstíg, Granda, Fitjum og Selfossi
    Verslanir Hagkaupa Skeifunni, Garðabæ og Spönginni.

Neytendur með ofnæmi fyrir möndlum eru beðnir um að neyta vörunnar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni til Brikk Eldhús ehf, Dalvegi 32b, 201 Kópavogi, gegn fullri endurgreiðslu.

BRIKK eldhús ehf. biður viðskiptavini sína afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Fyrir nánari upplýsingar er hægt að senda tölvupóst á netfangið: BRIKK@BRIKK.IS