Heilsa ehf. hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ákveðið að innkalla
vörurnar Husk og Colon cleanser frá Gula miðanum þar sem styrkur pýrrólízidínalkalóíða mældist yfir hámarksgildi fyrir fæðubótarefni.
Heilsa hefur beint tilmælum til allra söluaðila GM Husk og GM Colon cleanser að taka
vöruna úr sölu. Jafnframt er óskað eftir að viðskiptavinir skili vörunni til næsta söluaðila,
Heilsu ehf. eða fargi henni.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem er innkölluð:
Vörumerki: Guli miðinn
Vöruheiti: Husk og Colon cleanser
Strikamerki: 5690684004446 og 5690684000868
Vörunr: B10033 og 00COL
Framleiðandi: Lifeplan
Framleiðsluland: Bretland
Innflytjandi: Heilsa ehf
Lotunúmer og best fyrir dagsetning: Husk: lota 25/16/11 best fyrir: 12.06.2028 , lota
25/24/11 best fyrir: 09.07.2028, lota 25/35/15 best fyrir: 16.9.2028, lota 25/50/17 best
fyrir 23.4.202 Colon cleanser: lota: 25/5/59 best fyrir: 23.04.2028, lota 061225 best fyrir : 10.09.2028
Dreifing: Austurbæjarapótek, Apótek Garðabæjar, Borgar Apótek, Bæjarapótek, Lyfja,
Krónan, Hagkaup, Lyfjaver, Heilsuver, Apótekarinn, Lyfsalinn, Fjarðarkaup, Hlíðarkaup,
Kaupfélag Vestur – Húnvetninga, Siglufjarðarapótek, Þín verslun Kassinn, Urðarapótek.
Neytendur sem keypt hafa Husk og Colon cleanser frá Gula miðanum með
framgreindum lotunúmerum eru beðnir um að neyta hennar ekki og geta þeir skila
vörunni þar sem hún var keypt eða snúið sér beint til Heilsu ehf.
Ástæða innköllunar: Styrkur pýrrólízidín-alkalóíða er yfir hámarksgildi fyrir
fæðubótarefni.
Nánari upplýsingar veitir Heilsa ehf. í gegnum netfangið heilsa@heilsa.is