Góa Linda sælgætisgerð hefur ákveðið í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar,
Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness (HEF) að innkalla vöruna RISAHRAUN, 50 g.
Ástæða innköllunarinnar er sú að vírþræðir úr vírbursta hafa fundist í nokkrum stykkjum.
Upplýsingar um vöruna sem innköllun einskorðast við:
Framleiðandi: Góa Linda Sælgætisgerð
Vörumerki: Góa
Vöruheiti: Risahraun
Best fyrir dagsetning/Lota: 23.09.2027
Nettó þyngd: 50 g
Strikanúmer: 5690558001052
Dreifing: Bónus, Krónan og verslanir um allt land.
Búið að koma upplýsingum til söluaðila að viðkomandi vara verði tekin úr sölu.
Eigendur varanna eru vinsamlega beðnir um að koma vörunni til Góu, Garðahrauni 2, 210
Garðabæ.
Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
