Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallar Timur berry krydd frá Lifa ehf. (selt í Kokka, Laugavegi 47). Salmonella fannst í kryddinu við greiningu.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Medelys
Vöruheiti: Timur berry (Zanthoxylum armatum) / Baie De Timur Nepal
Best fyrir: 05/05/2030
Strikamerki: –
Nettómagn: 500g
Framleiðandi: Medelys
Framleiðsluland: Nepal
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:
Lifa ehf., Laugavegi 47, 101 Reykjavík
Neytendur sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til
verslunarinnar.
