Með hliðsjón af öryggi og velferð neytenda hafa Aðföng, að höfðu samráði við Bónus og H-Berg ehf,
ákveðið að taka úr sölu og innkalla Bónus Hnetublöndu með trönuberjum og pistasíum. Innköllunin
varðar best fyrir dagsetningu 15-05-2027 og er tilkomin vegna þess að aðskotahlutur úr við fannst í einni
pakkningu.
Varan hefur verið tekin úr sölu í verslunum.
Upplýsingar um vöruna:
Vörumerki: Bónus
Vöruheiti: Bónus Hnetublanda með trönuberjum og pistasíum
Nettómagn: 400g
Umbúðir: Plastumbúðir
Strikamerki: 5694311960501
Best fyrir dagsetning: 15.05.2027
Lotunúmer: 150901
Geymsluskilyrði: Þurrvara
Framleiðandi: Pakkað af H-Berg ehf. Í Hafnarfirði
Dreifing: Verslanir Bónus
Viðskiptavinum Bónus sem keypt hafa vöruna, með þessari tilteknu best fyrir dagsetningu, er ráðið frá því
að neyta hennar og er bent á að þeir geta skilað henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri
endurgreiðslu. Aðföng biður viðskiptavini Bónus sem kunna að hafa orðið fyrir óþægindum vegna þessa
innilegrar afsökunar.
Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530-5600 eða í gegnum netfangið gm[at]adfong.is
