Lífland ehf. hefur ákveðið í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur að innkalla
Kanilsnúðaköku frá Kornax.
Ástæða innköllunar: Aðskotahlutur (plaststykki) fannst í kanilsykurspoka sem fylgir með
Kanilsnúðaköku.
Upplýsingar um vöru sem er innkölluð:
Vörumerki: Kornax
Vöruheiti Best fyrir: Lotunúmer
Kanilsnúðakaka frá Kornax 18.08.2026 15012534403
Kanilsnúðakaka frá Kornax 10.11.2026 15012546102
Geymsluskilyrði: Þurrvara
Framleiðandi: Valsemøllen A/S, Esbjerg. Framleitt fyrir Lífland ehf. á Íslandi
Nettóþyng: 475g
Strikamerki: 5 690453 977919
Dreifingaraðilar: Krónan, Bónus, Hagkaup, Stórkaup, Fjarðarkaup, IKEA, Kaupfélag vestur
Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga, Hlíðarkaup, Melabúðin, Verslun Einars Ólafssonar,
Hraðbúðin Hellissandi, Víkurval og Fjölval Smáralind.
Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki. Vörunni má farga
eða fá nýja vöru í verslun Líflands á Korputorgi í Reykjavík. Nánari upplýsingar um
innköllunina veitir Lífland í síma 540-1100 eða netfang lifland@lifland.is.
