Með hliðsjón af velferð neytenda hafa Aðföng, að höfðu samráði við Bónus og H-Berg ehf, ákveðið að taka
úr sölu og innkalla Bónus Vanilludropa. Innköllunin varðar allar best fyrir dagsetningar og er tilkomin
vegna óstaðfests gæðaflokks hráefnis í vörunni.
Varan hefur verið tekin úr sölu í verslunum.
Upplýsingar um vöruna:
Vörumerki: Bónus
Vöruheiti: Bónus Vanilludropar
Nettómagn: 50ml glas, 500ml brúsi og 1 lítra brúsi
Umbúðir: Gler og plast.
Strikamerki: 5694311960143, 5694311960341, 5694311960150
Best fyrir dagsetning: Allar
Lotunúmer: Öll
Geymsluskilyrði: Þurrvara
Framleiðandi: Framleitt af H-Berg ehf. Í Hafnarfirði
Dreifing: Verslanir Bónus
Viðskiptavinum Bónus sem keypt hafa vöruna er ráðið frá því að nota hana og er bent á að þeir geta skilað
henni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu. Aðföng biður viðskiptavini Bónus sem
kunna að hafa orðið fyrir óþægindum vegna þessa innilegrar afsökunar.
Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530-5600 eða í gegnum netfangið gm[at]adfong.is.
